Áburðarverðskráin fyrir 2012 er nú tilbúin og er aðgengileg hérna á vefnum undir Áburður-verðlisti. Bændum verður svo sendur verðlisti og bæklingur með upplýsingum um vöruna í pósti. Selenbættur áburður hefur gefið góða raun í prófunum hjá okkur og einnig er greinilegt að hjá bændum sem hafa notað selenbættan áburð og láta mæla heysýni er selenhlutfallið í heyunum hærra en gengur og gerist. Þetta ættu að teljast góðar fréttir fyrir bændur því selenskortur er landlægt vandamál sem má fyrirbyggja á einfaldan og ódýran hátt með selenbættum áburði. Einnig er mikil ánægja meðal bænda sem notað hafa Avail áburðinn og höfum við heyrt reynslusögur frá bændum sem samræmast reynslu bænda í öðrum löndum. Við höfum bætt við 2 nýjum tegundum sem innihalda selen og eru þær því orðnar 4 og einni nýrri tegund með Avail fosfórbætinum sem er sú sjöunda í röðinni. Það er trú okkar að bændur geti haft mikinn hag af því að nýta sér þá kosti sem Avail og selen í áburði hefur upp á að bjóða. VERÐSKRÁ 2012
Skeljungur hélt fjóra velheppnaða bændafundi á dögunum. Farið var yfir áburðarmál, gæðamál og nýjungar. Kynntar voru niðurstöður heysýna þar sem fram kom að mjög góð svörun fæst við að bera á áburð sem inniheldur Selen (sjá súlurit hér að neðan). Einnig fékkst forvitnileg niðurstaða sem tengist Avail fosfórbætinum þar sem áburður sem innihélt Avail gaf áberandi meira sykurmagn, hærra þurrefni, lítillega hærra prótein og hagstæðara ph gildi. Fram kom hjá mörgum fundargesta að þeir telja sig hafa fengið mikinn ávinning af því að nota áburð með Avail og Selen. Í framhaldi af fundunum er í skoðun að bæta við tegundum sem innihalda Avail og Selen til þess að koma til móts við óskir og þarfir viðskiptavina okkar.
Hjá okkur fæst mikið úrval af hinum vinsælu skeifum frá Kerckhaert og vönduðum járningavörum frá góðum framleiðendum. Í janúar verður frábært tilboð á járningaverkfærum og hvetjum við áhugasama um að koma og kynna sér málin.